Námskeiðin snúast annars vegar um að auka grunnþekkingu nemenda á stofnun og rekstri fyrirtækja og hins vegar að opna augu þeirra fyrir nýjum og betri leiðum til að þróa viðskiptahugmyndina.
Námskeiðin eru hugsuð sem stuttir kúrsar (2 x 4 tímar eða 3 x 3 tímar) sem verða til boða um helgar, eftirmiðdaga og kvöld.
Á fyrstu önn verða 25 valkúrsar til boða á fimm sviðum:
Hver kúrs er ein eining og geta nemendur raðað saman þremur valkúrsum innan hvers sviðs til að fá metið sem 3 eininga kúrs innan HR.
Jafnframt er boðið upp á stutta hæfniskúrsa (t.d. framkoma í fjölmiðlum, upplýsingaleit og ákvörðunartaka) sem geta þjónað frumkvöðlum og atvinnugeiragreiningar eftir því sem við á.
Námskeiðin verða ennfremur opin fyrir aðra nemendur og sprotafyrirtæki.
Námsmat:
Verkefnavinna mun í flestum af námskeiðum vera uppistaða einkunnar. Munnleg próf verða að einhverju leyti notuð annars vegar til að prófa í námsefninu og hins vegar til að heyra hvernig nemandi hyggst nýta sér námsefnið til að þróa viðskiptahugmyndina.