myndaskraut

Leiðbeinendur:

Aðalleiðbeinendur eru fremstu fræðimenn á sviði frumkvöðlakennslu á Íslandi. Jafnframt munu sérfræðingar á hverju sviði kenna einstök námskeið. Umsjónarmaður er Dr. Eyþór Ívar Jónsson sem er forstöðumaður nýsköpunar- og frumkvöðlafræðslu í MBA og stjórnendanámi í Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (Copenhagen Business School).

Ráðgjafar:

Ráðgjafar munu aðstoða nemendur á ýmsum stigum námsins. Hlutverk þeirra er að hjálpa nemendum að gera raunhæfar áætlanir og vinna á markvissan hátt. Ráðgjafarnir eru reyndir frumkvöðlar og fjárfestar. Bæði Iceland Angels, sem er viðskiptaenglanet Íslands og Sprotaþing Íslands/Seed Forum Iceland, sem heldur utan um fjárfestaþing sprotafyrirtækja á Íslandi munu verða nemendum innan handar.

Ráðgjafarstjórnir:

Ráðgjafarstjórnir munu aðstoða nemendur á lokaönn námsins. Hlutverk ráðgjafarstjórna er að hjálpa nemendum að byggja upp fyrirtækið þegar það er komið í rekstur. Hver stjórn hittist einu sinni í mánuði. Stjórnarmenn eru einstaklingar með mikla reynslu úr atvinnulífinu, fólk sem hefur starfað sem stjórnarmenn eða stjórnendur sprota- eða stórfyrirtækja.


Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins - Ofanleiti 2 - Reykjavík - Kt. 440500-2690 - Sími 490 1000 - klak@klak.is