Inngönguskilyrði:

Nemendur eru valdir inn í námið annars vegar á grundvelli viðskiptahugmyndar sem þeir senda inn og hins vegar á grundvelli reynslu og bakgrunns. Markmiðið er að mynda hóp af áhugaverðum einstaklinum sem geta ekki síður lært mikið hver af öðrum en af náminu. Aðalatriðið er þó að nemendur hafi þegar byrjað að þróa viðskiptahugmyndina áður en námið hefst.

Hverjir komast að:
Hægt er að sækja um hvort er sem einstaklingum eða sem hópur (2-4 einstaklingar) sem vinna að sömu viðskiptahugmynd. Talsverður ávinningur er að takast á við verkefnið sem hópur frekar en einstaklingur þar sem aðilar innan hópsins geta þá sérhæft sig að mismunandi verkefnum tengdum viðskiptahugmyndinni. Einnig er hægt að sækja um með fyrirtæki sem er þegar í rekstri ef til dæmis er verið að undirbúa fjármögnun eða vöxtur fyrirtækisins og alþjóðavæðing eru markmiðin. Mögulegt er að stunda námið með vinnu eða öðru námi en nauðsynlegt er að nemendur séu að einbeita sér að því að gera viðskiptahugmynd að fyrirtæki eða fyrirtæki að vaxtarfyrirtæki.

Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins - Kringlunni 1 - Reykjavík - Kt. 440500- 2690 - Sími 578 7755 - klak@klak.is - Hönnun og forritun: Hugsandi menn ehf.