Hugmyndafræði náms og kennslufræði
Grundvöllur þeirrar kennslufræði sem Viðskiptasmiðjan byggir á er ákveðið ferli sem snýst um að búa til fyrirtæki sem selja vörur og þjónustu sem byggir á nýsköpun og tækni. Þetta ferli er einfaldlega kallað „viðskiptasmiðjan“. Ferlið gengur út á að gera frumkvöðlum kleift að öðlast þekkingu, skilning, hæfni og leikni sem miðar að því að búa til fyrirtæki sem byggja á nýsköpun. Sérstök áhersla er á að nýta nýja tækniþekkingu til þess að byggja upp fyrirtæki.
Hugmyndafræði „uppgötvunarskólans“ og „sköpunarskólans“
Viðskiptasmiðjan – Hraðbraut nýrra fyrirtækja er byggð á rannsóknum í frumkvöðlafræðum. Þar er fléttað saman hugmyndafræði „uppgötvunarskólans“ og „sköpunarskólans“. Uppgötvunarskólinn snýst um glugga tækifæra, viðskiptaáætlanir og dæmigerðan áætlunarskóla stefnumótunarfræðanna og hagnýtar nálgunar. Sköpunarskólinn byggir hins vegar á óskráðri þekkingu og lærdómi sem fæst aðallega með því að prófa sig áfram, reynslu og samvinnu fólks. Uppgötvunarskólinn byggist á undirbúningi, því að gera greiningar og áætlanir, en sköpunarskólinn byggir meira á aðgerðum og tengslanetum. Nýlegar rannsóknir hafa sýnt að ef stuðst er við hugmyndafræði bæði uppgötvunar- og sköpunarskólans í menntun og þjálfun þá er hún líklegri til þess að bera árangur fyrir frumkvöðla en menntun sem einungis er byggð á hugmyndafræði uppgötvunarskólans líkt og frumkvöðlakennsla hefur hingað til verið byggð á.
Út frá kennslufræði þá er hefðbundin kennsluaðferðafræði á háskólastigi höfð að leiðarljósi þó með áherslu á umræður og samvinnu eins og þekkist til dæmis í MBA-námi víða. Ennfremur flokkast kennsluaðferðir að mörgu leyti undir verkefnalærdóm (e. project-based-learning) og athafnalærdóm (e. activity-based-learning). Aðalverkefni nemenda er að búa til fyrirtæki á tímanum og minni verkefni snúast um einstaka þætti í ferlinu að búa til fyrirtæki. Mikil áhersla er á frumkvæði nemenda og frumleika við úrlausnir á verkefnum Viðskiptasmiðjunnar.
Leiðbeinendur, kennarar og ráðgjafarstjórnir hafa það meginmarkmið að hjálpa og ýta undir það frumkvæði sem til þarf til þess að skapa árangursríka frumkvöðla og fyrirtæki.

