Námið er hugsað sem þrjár annir eða eins árs nám.
Aðalverkefni námsins er að vinna stöðugt og ákveðið að stofnun og uppbyggingu fyrirtækis.
Á fyrstu önn er meginmarkmiðið að þróa viðskiptahugmyndina á það stig að það er ekkert til fyrirstöðu að hefja rekstur. Í lok fyrstu annar meta fimm sérfræðingar fýsileika viðskiptaáætlunar.
Á annarri önn er meginmarkmiðið að prófa viðskiptahugmyndina, hvort sem er með því að búa til frumgerð eða bjóða vörur og þjónustu til fáeinna viðskiptavina. Í lok annar meta fimm fjárfestar hversu áhugaverð hugmyndin er frá sjónarhóli fjárfesta og markaðarins.
Á þriðju önn er gert ráð fyrir að fyrirtækið sé komið í rekstur og farið að skapa tekjur. Í lok þriðju annar er viðskiptamódelið í heild sinni metið af sérstakri ráðgjafarstjórn sem vinnur með fyrirtækinu á þriðju önn, sem jafnframt gefur ráð um hvernig má rækta fyrirtækið til lengri og styttri tíma.
Boðið verður upp á möguleika að flytjast á milli anna nokkrum sinnum á ári eftir því sem við á. Þar af leiðandi geta fyrirtæki sem hafa þróað góða viðskiptaáætlun komist fyrr inn á næstu önn. Einnig geta fyrirtæki sem ekki geta náð þeim áfanga sem hver önn miðast við sótt um frest til að leggja verkefnið undir dóm sérfræðinga.
Mikilvægur þáttur námsins er að á námstímanum munu nemendur hafa aðgang að ráðgjöfum og sérfræðingum sem geta hjálpað þeim að þróa viðskiptahugmyndina. Leiðbeinendur munu jafnframt hjálpa frumkvöðlum að meta hvaða kúrsar ættu að vera áhugaverðir fyrir þá og hvort og hvenær þeir eru tilbúnir til þess að leggja verkefnið fram.
Sameiginleg vinnuaðstaða verður fyrir hendi í húsakynnum Klaks Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins og gert er ráð fyrir að strax á annarri önn eigi fyrirtæki möguleika á að fá séraðstöðu í Klaki.
Verklegt nám:
Námið er að miklu leyti verklegt að því leyti að námið snýst einfaldlega um að gera viðskiptahugmynd að veruleika, að búa til fyrirtæki með rekstur. Ráðgjafar, kennarar og ráðgjafarstjórnir hafa það að meginmarkmið að hvetja og hjálpa til við að skapa það frumkvæði sem til þarf til þess að skapa árangursríka frumkvöðla og fyrirtæki. Hagnýt verkefni sem eru hluti af námsmati eru verkefni sem tengjast beint þeim fyrirtækjum sem verið er að reyna að koma á fót. Aðalverkefni hverrar annar samsvarar sex einingum.
Lokaverkefni í lok hverrar annar:
Í lok hverrar annar verja nemendur aðalverkefnið og gildir það 6 einingar. Á fyrstu önn er lokaverkefnið viðskiptaáætlun, á annarri önn prófun hugmyndar og á þriðju önn rekstrarárangur.
Einingar:
Námið í heild miðast við 45 einingar (90 ECTS)
Ef nemendum snýst hugur um stofnun fyrirtækis á námstímanum þá geta þeir sótt um að fá nám sitt metið til eininga í öðru námi innan HR. Námið er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.
Umsóknareyðublað er að finna hér.