Viðskiptasmiðjan – vorönn 2012
Sjö ástæður til þess að koma í Viðskiptasmiðjuna:
1) Taktu frumkvæðið og gríptu tækifærið
2) Þróaðu viðskiptahugmyndina og fyrirtækið
3) Skapaðu vöxt, árangur og framtíðarsýn
4) Fjármagnaðu fyrirtækið
5) Fáðu ráðgjöf sem leiðir til árangurs
6) Vertu með í öflugu tengslaneti
7) Byggðu upp þekkingu og færni í rekstri
Viðskiptasmiðjan er farvegur fyrir frumkvöðla og stjórnendur fyrirtækja til að móta verðmæta viðskiptahugmynd, skapa trúverðugt teymi og framtíðarsýn fyrirtækis sem miðar að vexti og árangri. Viðskiptasmiðjan er hönnuð fyrir fyrirtæki sem eru í rekstri en vilja efla eða umbreyta rekstrinum og frumkvöðla sem eru að móta viðskiptahugmynd sína eða þróa fyrirtækið.
Ráðgjöf og tengslanet – Fjöldi sérfræðinga í uppbyggingu fyrirtækja og nýsköpun hjálpa frumkvöðlum og stjórnendum að móta verðmæta viðskiptahugmynd, skipuleggja rekstur og móta framtíðarsýn.
Þekking og færni – Stjórnendur fyrirtækja hafa aðgang að námskeiðum sem eru hönnuð með það í huga að byggja upp teymi fyrirtækja, þróa viðskiptamódel og efla stefnumótun fyrirtækis.
Ferli til vaxtar og árangurs – Fyrirtæki fara í gegnum vaxtarferli Viðskiptasmiðjunnar á einu ári með það að leiðarljósi að búa til árangursríkt sprotafyrirtæki.
Viðskiptasmiðjan – Hraðbraut nýrra fyrirtækja var sett á laggirnar árið 2008 í samstarfi við Háskólann í Reykjavík með það að leiðarljósi að efla nýsköpun og fjölga sprotafyrirtækjum á Íslandi. Hugmyndafræðin byggist að miklu leyti á stefnumótunar-, nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum. Markmiðið er að hjálpa frumkvöðlum að skapa og móta viðskiptahugmynd, að byggja upp trúverðugt teymi og að koma á fót og skipuleggja fyrirtæki. Dr. Eyþór Ívar Jónsson hefur þróað og prófað hugmyndafræði Viðskiptasmiðjunnar. Þessi hugmyndafræði hefur verið einfölduð í svokölluðu Klak-módeli.
Mikill árangur hefur náðst hjá þeim fyrirtækjum sem hafa nýtt sér farveg Viðskiptasmiðjunnar. Fyrirtæki eins og Remake Electric, Gavia, Trackwell, AGR, Stjörnu Oddi, Clara, Fafu, Nagli.is og fleiri eru allt fyrirtæki sem hafa farið í gegnum Viðskiptasmiðjuna. Viðskiptasmiðjan er rekin í samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
Klak-módelið:
Hvað segja frumkvöðlar:
Hilmir – framkvæmdastjóri Remake Electric: „Ég lærði það hjá Viðskiptasmiðjunni að ég þyrfti að hafa teymi í fyrirtækinu og með því að mynda rétt teymi þá náðum við að tryggja fjárfestingu frá ekki síðri félögum en Eyri Invest og Nýsköpunarsjóði Atvinnulífsins. Ég náði meira að segja að fá Þórð Magnússon til þess að gerast viðskiptaengill í ReMake áður en Eyrir og NSA komu inn, en það var það sem ég lærði hjá Viðskiptasmiðjunni sem honum líkaði við fyrirtækið. Niðurstaða mín eru botnlausar þakkir til aðstandenda Klaksins fyrir að skapa Viðskiptasmiðjuna ásamt ráðgjöfum, kennurum og leiðbeinendum úr Viðskiptasmiðjunni. Ég veit ekki hvar ég væri án ykkar. Viðskiptasmiðjan verður að vera til staðar fyrir framtíðar frumkvöðla sem eru enn í skugga vanþekkingar sinnar á tungumáli viðskiptageirans.”
Jón Ingi – framkvæmdastjóri Trackwell: „Við skipulagningu á því hvernig væri best að haga erlendum sóknartækifærum TrackWell og fjármögnun þeirra nýttum við ráðgjafateymi Viðskiptasmiðjunnar. Viðskipta- og markaðsáætlanir sem unnar voru í Viðskiptasmiðjunni er undirstaða þeirra stefnu sem við vinnum eftir í dag.”
Gunnar Hólmsteinn – framkvæmdastjóri Clara: „Þegar við byrjuðum í Viðskiptasmiðjunni vorum við fjögurra manna fyrirtæki með einn samstarfsaðila, alltof stóra viðskiptaáætlun og alltof víðan fókus. Viðskiptasmiðjan, kennaraliðið og tengslanet hennar átti stóran þátt í að undirbúa okkur og gera okkur að þeim stjórnendum sem voru í stakk búnir að rúmlega tvöfalda starfsmannafjölda okkar, skerpa fókusinn og ná inn milljón dollurum frá erlendum fjárfestingasjóð.“
Ávinningur:
Tengslanet: Ný fyrirtæki komast inn í tengslanet við aðra frumkvöðla og sprotafyrirtæki sem vinna saman og hjálpa hvert öðru. Einnig tengjast fyrirtækin helstu sérfræðingum á sviði stefnumótunar og reksturs fyrirtækja, hvort sem er í atvinnulífinu eða háskólum. Síðast en ekki síst tengjast frumkvöðlar fjárfestum, bæði viðskiptaenglum og stjórnendum og starfsmönnum fjárfestingarsjóða.
Ráðgjöf: Fjöldi ráðgjafa koma að Viðskiptasmiðjunni. Þetta eru ráðgjafar úr atvinnulífinu og háskólum sem hafa mikla þekkingu á rekstri nýrra fyrirtækja og vaxtarfyrirtækja. Ráðgjafateymi sérhæfð í fjármálum, markaðsmálum og viðskiptaþróun aðstoða jafnframt fyrirtækin á tímabilinu.
Námskeið: Á þriðja tug námskeiða eru í boði í Viðskiptasmiðjunni á hverju ári. Námskeiðin eru byggð á Klak-módelinu og snúast um að byggja upp trúverðugt teymi sem byggir á sköpunar-, greiningar- og samskiptahæfi, verðmætri viðskiptahugmynd þar sem framboðið tekur mið af aðstæðum og markaði og fyrirtæki sem er verkvangur þar sem auðlindir, skipulag og stefna vinna saman.
Áfangavörður: Á mánaðarfresti er einskonar stöðutaka þar sem frumkvöðlar kynna fyrir panel verkefni sem endurspegla framvindu fyrirtækisins. Í panel eru sérfræðingar frá Viðskiptasmiðjunni og fjárfestar. Þessi stöðuverkefni geta farið eftir eðli fyrirtækja og stöðu í vaxtarferlinu. Í megindráttum eru vörðurnar fjórar í þróunarferlinu: Hugmyndasköpun, verktæknisköpun, raunsköpun og markaðssköpun.
Dagskrá:
Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg í Viðskiptasmiðjunni á vorönn. Dagskráin hefst 30. janúar og lýkur formlega 4. maí. Í byrjun maí er skipulögð ferð í Kísildalinn í Bandaríkjunum. Viðskiptasmiðjan er til húsa í Ofanleiti 2 (gamli HR).
Námskeið: Níu lengri námskeið eru á vorönn en jafnframt eru málstofur og vinnustofur.
Tengslanet: Klakabar, Seed Forum Iceland, Nýsköpunarhádegi og aðrir tengslanetsviðburðir.
Vísindaferðir: Farið verður vísindaferð til London í lok mars og í Kísildalinn í Bandaríkjunum í maí.
Ráðgjöf: Þrjú panel sérfræðinga eru á vorönn og fundir með þremur ráðgjafateymum.
Verð:
275.000. – á önn.


