Viðskiptasmiðjan -Hraðbraut nýrra fyrirtækja

TÆKIFÆRIÐ ER NÚNA... LÁTTU DRAUMA ÞÍNA RÆTAST!

Hraðbraut nýrra fyrirtækja
Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins og Háskólinn í Reykjavík hafa komið á fót hraðbraut sem gefur frumkvöðlum möguleika á að stofna ný fyrirtæki eða koma fyrirtækjum sínum á rétta braut. Verkefnið er einungis eitt: Að búa til samkeppnishæft fyrirtæki. Á þessari hraðbraut er boðið upp á námskeið sem skapa nauðsynlega þekkingu, þar eru leiðbeinendur og ráðgjafar sem vísa veginn og það skapast tengsl við aðra frumkvöðla og fjárfesta sem veitir stuðning og orku. Viðskiptasmiðjan er hraðbraut nýrra fyrirtækja.

Stuðningskerfið
Rannsóknir hafa sýnt að flest ný fyrirtæki ná aldrei flugi vegna þess að frumkvöðlar gera grundvallarmistök í rekstrinum, einfaldlega vegna þess að þeir hafa ekki nauðsynlega þekkingu né góða ráðgjafa. Viðskiptasmiðjan hefur fengið mestu sérfræðinga landsins í þróun nýsköpunarfyrirtækja og rekstri sprotafyrirtækja sem leiðbeinendur og ráðgjafa á hraðbrautinni. Þeir hjálpa til við að leysa vandamál og finna leiðir til að grípa tækifæri. Enn fremur er návist við aðra frumkvöðla mikilvægur stuðningur. Aðstaða hjá Klaki - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins tryggir aðgang að tengslaneti frumkvöðla og fjárfesta.

Námskerfið
Í fyrsta skipti á Íslandi er boðið upp á sérhæft nám fyrir frumkvöðla. Viðskiptasmiðjan er námsbraut á háskólastigi þar sem markmiðið er að nemendur stofni fyrirtæki og hefji rekstur á námstímanum. Mikið úrval af námskeiðum í samstarfi við Háskólann í Reykjavík gerir frumkvöðlum kleift að fá viðeigandi viðskiptaþekkingu. Náið samstarf við erlenda háskóla, eins og Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn (Copenhagen Business School) og Háskólann í Lundi í Svíþjóð, tryggir að námskeiðin séu í samræmi við bestu námskeið á Norðurlöndum. Námsfyrirkomulagið er sveigjanlegt, kennslustíllinn er lifandi og námið snýst um verklega þekkingu.

Upphaf náms
Námið hefst í 11. janúar 2009.

Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til 15. desember 2009. Umsókn má finna hér.

Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins - Kringlunni 1 - Reykjavík - Kt. 440500- 2690 - Sími 578 7755 - klak@klak.is - Hönnun og forritun: Hugsandi menn ehf.