Ráðgjafar og leiðbeinendur

Dr. Eggert Claessen
Eggert er doktor í viðskiptafræðum frá Henley Management College og hefur MSc. gráðu í alþjóðaviðskiptum og Cand.Oecon gráðu frá Háskóla Íslands. Hann er stjórnarformaður GoPro ehf., Amivox ltd. og Formedix. Eggert stofnaði meðal annars Tölvumiðlun og fleiri fyrirtæki og hefur víðtæka reynslu sem framkvæmdastjóri og fjármálastjóri sprotafyrirtækja. Hann hefur einnig gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir upplýsingatækniiðnaðinn.

Dr. Rögnvaldur Sæmundsson
Rögnvaldur er með doktorspróf frá Chalmers tækniháskólanum og hefur verkfræðipróf í rafmagnsverkfræði og meistarapróf í verkfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur komið að stofnun og setið í stjórnum nokkurra tæknifyrirtækja, þ.m.t. Flögu hf. og kennt frumkvöðlafræði í grunn- og MBA-námi við Háskólann í Reykjavík. Rögnvaldur er dósent og forstöðumaður rannsóknarseturs í frumkvöðlafræðum við Háskólann í Reykjavík. Hann vinnur að rannsóknum á vaxtarferli nýrra tæknifyrirtækja.

Dr. Jón Helgi Egilsson
Jón Helgi er menntaður í verkfræði, tölvunarfræði og fjármálum. Hann er lektor við Háskólann í Reykjavík. Jón Helgi er framkvæmdastjóri Seed Forum North America og hafði frumkvæðið í að koma Seed Forum Iceland á legg. Hann hefur tekið þátt í stofnun nokkurra fyrirtækja, m.a. Cell Objects Inc. Jón Helgi hefur reynslu sem stjórnandi og fjármálastjóri sprotafyrirtækja og hann hefur víðtækt tengslanet við fjárfesta beggja vegna Atlantshafsins sem og á Íslandi.

Dr. Benedikt Jóhannesson
Benedikt er með doktorspróf í stærðfræði og menntaður í hagfræði frá Bandaríkjunum. Hann er stofnandi og framkvæmdastjóri Talnakönnunar og Heims. Benedikt hefur víðtæka reynslu sem stjórnarformaður í íslenskum fyrirtækjum og var m.a. stjórnarformaður Eimskipa, Myllunnar og Skeljungs og er núverandi stjórnarformaður Nýherja. Hann er ennfremur ritstjóri Vísbendingar og fáir hafa skrifað meira um íslenskt viðskiptalíf en hann.


Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Eyþór er með doktorspróf í viðskiptafræði frá Henley Management College í Bretlandi og MSc. og Cand.Oecon gráður frá Háskóla Íslands. Hann er forstöðumaður í frumkvöðlafræðslu í MBA- og stjórnendanámi við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn. Eyþór er framkvæmdastjóri Klaks – Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins og Seed Forum Iceland. Hann er einnig umsjónarmaður Iceland Angels, íslenska viðskiptaenglanetsins. Eyþór skrifaði fyrstu bókina fyrir frumkvöðla á Íslandi og hefur skrifað hundruð greina um íslenskt viðskipta- og efnahagslíf. Eyþór er forstöðumaður Viðskiptasmiðjunnar.

Sturla Jóhann Hreinsson
Sturla er með BA í sálfræði frá H.Í. og Cand Psych gráðu í vinnusálfræði frá Árósaháskóla. Hann starfar sem starfsmannstjóri Nýherja og vann þar áður við rannsóknir í IESE Business School Barcelona. Sturla hefur víðtæka reynslu sem sérfræðingur í starfsmannahaldi og starfsþróun. Hann tók þátt í að stofna www.persona.is, ráðgjafavef á sviði sálfræði, ritstýrði þeim hluta sem fjallaði um vinnusálfræði og hjálpaði MBA nemendum við IESE að móta viðskiptahugmyndir. Sturla starfar einnig sem stundakennari við Háskólann í Reykjavík.

Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins - Kringlunni 1 - Reykjavík - Kt. 440500- 2690 - Sími 578 7755 - klak@klak.is - Hönnun og forritun: Hugsandi menn ehf.