Fjármögnun
Klak er ekki fjárfestingarsjóður. Klak kemur hins vegar að fjármögnun og fjármögnunarviðræðum vegna verkefna með óbeinum hætti, bæði með því að aðstoða við gerð viðskiptaáætlana, með því að aðstoða við kynningar og þátttöku í samningaviðræðum við fjárfesta.
Í dag gefst sprotafyrirtækjum kostur á að leita fjármagns með hefðbundnum hætti innanlands auk nýrra leiða s.s. með því að nýta þjónustu Seed Forum International. Klak nýsköpunarmiðstöð rekur Seed Forum starfsemi á Íslandi samkvæmt sérstökum samningi við Seed Forum Iceland.

