Hlutverk
Hlutverk Klaks ehf. er að vera framsækið nýsköpunarhús sem kemur að mótun, mati og útfærslu viðskiptahugmynda sem byggir á nýsköpun og upplýsingatækni.
Framtíðarsýn
Framtíðarsýn Klaks er að vera á meðal fremstu nýsköpunarhúsa á sviði upplýsingatækni, hugbúnaðar- og orkuvinnslu. Félagið sé eftirsóknarvert sem samstarfs- og þjónustuaðili meðal sprotafyrirtækja og fjárfesta. Þjónusta félagsins sé framúrskarandi og félagið sjálft góð eign þar sem þekking og tengsl eru nýtt til að gera hana enn verðmætari.