myndaskraut

Fréttir

Með þátttöku í Startup Reykjavik, samstarfsverkefni Arion banka, Klak og Innovit, fá tíu teymi 2.000.000 krónur í hlutafé (gegn 6% hlutdeild Arion banka), glæsilega aðstöðu og 10 vikna þjálfun og ráðgjöf frá á fjórða tug forstjóra, innlendra og erlendra sérfræðinga og athafnamanna sem leiðbeina þeim fram á veginn. Startup Reykjavik er hluti af Global Accelerator Network, sem er alþjóðlegur hluti starfsemis Techstars í Bandaríkjunum. Samstarfið við GlobalAccelerator Network felur í sér tækifæri fyrir ung fyrirtæki til að kynna sínar viðskiptahugmyndir fyrir erlendum aðilum bæði hvað varðar þróun sinna hugmynda og mögulega framtíðarfjármögnun.

Markmið Startup Reykjavik er að skapa umgjörð þar sem athafnamenn njóta ráðgjafar og leiðsagnar reynslumikilla aðila í þeim tilgangi að ýta úr vegi nýjum viðskiptatækifærum. Startup Reykjavik verkefnið er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi en verkefni sem þessi hafa notið mikilla vinsælda og virðingar víðsvegar um heim af fjárfestum og fyrirtækjum sem eru að stíga sín fyrstu skref.

Nánari upplýsinga um Startup Reykjavík má finna á www.startupreykjavik.com

 


Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins - Ofanleiti 2 - Reykjavík - Kt. 440500-2690 - Sími 490 1000 - klak@klak.is