Iceland Angels er fyrsta íslenska englanetið. Hlutverk Klaks er að vera rekstraraðili netsins og tryggja bæði framboð áhugaverðra viðskiptatækifæra fyrir íslenska viðskiptaengla og að halda utan um íslenska englanetið.
Frumkvöðlar sem hafa áhuga á að sækja um fjármagn í gegnum Iceland Angels eru beðnir að hafa samband við Eyþór Ívar Jónsson – eythor@klak.is
Nú þegar hafa 5 fyrirtæki sett inn ítarlegar upplýsingar um viðskiptaáætlanir sínar og hversu mikils fjármagns þau leita. Valdir fjárfestar hafa verið fengnir til þess að skoða hvort þeir hafi áhuga á að fjárfesta í þessum fyrirtækjum. Tvö af fyrirtækjunum kynntu sig á Seed Forum Iceland sem Klak rekur einnig.
Fjárfestar sem hafa áhuga að vera meðlimir í Iceland Angels og hafa þar af leiðandi aðgang að helstu upplýsingum um þau fyrirtæki sem eru að sækja sér fjármagn á hverjum tíma geta haft samband við Eyþór Ívar Jónsson – eythor@klak.is
Meðfylgjandi er slóð fyrir frumkvöðla til þess að skrá fyrirtæki sín inn í kerfið í þeim tilgangi að leita eftir fjármagni:


