Í litlum fyrirtækjum skiptir hver starfsmaður enn meira máli en í þeim stóru. Því er mikilvægt að vanda vel til ráðninga.
Í því tilefni hefur Klak gert samning um þjónustu við sprotafyrirtæki á frábærum kjörum.
Talent er nútímaleg ráðningaþjónusta sem leggur metnað í að vinna faglega og veita persónulega þjónustu. Ráðgjafar Talent eru vel menntaðir og með mikla reynslu af ráðningum sérfræðinga.
Sett verður upp sérstök vefsíða þar sem birtar verða allar atvinnuauglýsingar frá sprotafyrirtækjum sem tengjast Klak. Þar verður hægt að sækja um viðkomandi störf. Linkur á síðuna verður á heimasíðu Klaks og einnig birtast öll störfin á talent.is. Bæði verður hægt að sækja um sérstaklega auglýst störf og einnig að senda inn almennar umsóknir. Á síðunni verður listi yfir fyrirtækin sem taka þátt og stutt lýsing á þeim.
Þau fyrirtæki sem vilja taka þátt, þurfa að senda eftirfarandi upplýsingar:
1. Nafn og kennitölu á fyrirtækinu
2. Nafn, síma og netfang hjá tengilið (sem tekur ákvarðanir varðandi ráðningar)
3. Stutta lýsingu á starfssemi fyrirtæksins (1-3 línur)
4. Upplýsingar um hvaða þekkingu og reynslu er helst leitað að
Þjónusta okkar er eftirfarandi:
• Störfin auglýst á heimasíðu Talent og sérstakri síðu fyrir Klak
• Leitað í gagnagrunni Talent að hæfum einstaklingum þegar óskað er
• Greining og flokkun umsækjenda
• Möguleiki á viðtölum við umsækjendur á skrifstofu Talent
• Samband haft við meðmælendur
• Ráðgjafar Talent sjá um öll samskipti við umsækjendur
• Þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir er öllum svarað
Ábyrgð á ráðningum og greiðslur
Ábyrgð er á ráðningu ef starfsmaður hættir í starfi innan 3ja mánaða frá ráðningu. Tilkynna þarf strax til Talent ef starfsmaður hættir. Ábyrgð er á því formi að ráðinn er starfsmaður í stað þess sem hættir. Ef ekki kemur til ráðningar er ekkert gjald tekið.