Hvernig getur þú búið til verðmæti?

Góð viðskiptahugmynd þarf ekki að vera flókin til þess að vera líkleg til árangurs. Í Hugmyndasmiðju Klaks býrðu til þína eigin viðskiptahugmynd út frá ákveðnum forsendum og forskrift. Þetta er fyrsta skrefið í að þú skapir þína eigin framtíð. Einstaklingum, hópum og fyrirtækjum er boðið að taka þátt í Hugmyndasmiðjunni, þeim að kostnaðarlausu í tilefni alþjóðlegu athafnavikunar (takmarkaður sætafjöldi).
Í lok dags ættu allir þátttakendur að vera komnir með spennandi viðskiptahugmynd til þess að vinna með.

Sérstök áhersla verður lögð á að skapa samfélagslega ábyrgar viðskiptahugmyndir.

Staður: Klak – Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins, Kringlunni 1 (gamla Morgunblaðshúsinu), stofu K-3.
Stund: föstudaginn 20. nóvember  klukkan 10 til 16.
Skráning: með tölvupósti á klak@klak.is Vinsamlegast takið fram nafn og símanúmer.

Hugmyndasmiðjan er unnin í samstarfi við Háskólann í Reykjavík.



Þeir sem fara í gegnum Hugmyndasmiðju Klaks er einnig boðið að sækja námskeiðið: Kynningarþjálfun, sem er hluti af Viðskiptasmiðju Klaks, laugardaginn 21. nóvember.

Kynningarþjálfun
Tilgangur:  Frumkvöðlum reynist oft erfitt að koma hugmyndum sínum frá sér í stuttu hnitmiðuðu formi og eiga erfitt með að skilja aðalatriðin frá aukaatriðunum.  Þetta verður sérstaklega áberandi þegar frumkvöðlar fá tækifæri til þess að kynna verkefni sín fyrir fjárfestum. 

Markmið: Frumkvöðlar læri hvaða  atriði fjárfestar hafa áhuga á að heyra og geti komið því frá sér á hnitmiðaðan hátt.

Ávinningur:  Betri samskipti við fjárfesta leiðir til betra samstarfs.  Með nokkrar grunnreglur í farteskinu líður frumkvöðlinum vel við að kynna hugmyndir sínar og getur gert það á áhrifaríkari hátt.

Kennari:  Eyþór Ívar Jónsson
Tími: 21. nóvember klukkan 9-17
Skráning: á meðan að Hugmyndasmiðju Klaks stendur, föstudaginn 20. nóvember.  Námskeiðið er aðeins opið þeim sem hafa farið í gegnum Hugmyndasmiðju Klaks.
 

Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins - Kringlunni 1 - Reykjavík - Kt. 440500- 2690 - Sími 578 7755 - klak@klak.is - Hönnun og forritun: Hugsandi menn ehf.