Start09 hófst með hugmyndafundi í Borgarleikhúsinu í byrjun júní. Þekktir erlendir frumkvöðlar voru fengnir til að deila reynslu sinni með Íslendingum, þeir Salem Samhoud og Jeff Taylor. Samhoud fjallaði um nauðsyn þess að þjóðin þjappaði sér saman um ákveðin gildi en Taylor deildi með gestum þeim lærdómi sem hann hefur dregið af áralöngu og árangursríku frumkvöðlastarfi. Auk þeirra flutti Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, erindi.
Í framhaldi af þessu bauð N1 fólki að senda inn hugmyndir. 200 hugmyndir bárust og þótti hugmynd Remake Electric eiga helst við Ísland í dag og vera líklegust til árangurs. Vinningur var ein milljón króna - auk hjálpar N1 við að koma hugmyndinni í framkvæmd.
Við óskum Remake Electric innilega til hamingju með árangurinn