Verðlaunafrumkvöðlar í Viðskiptasmiðjunni – Hraðbraut nýrra fyrirtækja
Þrjú fyrirtæki voru sérstaklega verðlaunuð fyrir góðan árangur í Viðskiptasmiðjunni – Hraðbraut nýrra fyrirtækja á lokahófi sumarannar Viðskiptasmiðjunnar 23. júlí síðastliðinn. Þetta voru fyrirtækin Women's Factory sem framleiðir hátísku regnkápur, Ævintýri sem er fyrirtæki sem sérhæfir sig í grænum hótelrekstri og upplifunarferðamennsku og Clara sem er hátæknifyrirtæki sem mælir umtal á netinu. Öll fyrirtækin hafa náð miklum árangri á skömmum tíma og eru þegar á meðal áhugaverðustu sprotafyrirtækja landsins. Þetta eru fyrirtæki sem eru líkleg til að skapa mörg störf á næstu mánuðum og árum.
Viðskiptasmiðjan – Hraðbraut nýrra fyrirtækja var sett á fót fyrir ári síðan og hefur sannað mikilvægi sitt með því að þjálfa bæði nýja og reyndari frumkvöðla til þess að búa til öflugri fyrirtæki. Reyndir framkvæmdastjórar eins og framkvæmdastjórar Stjörnu-Odda og Trackwell hafa notað tækifærið til að endurskipuleggja fyrirtæki sín og skapa nýja framfarasókn. Fyrirtæki eins og Clara og Gogoyoko hafa náð að finna fókus og stefnu sem getur leitt þau til farsællar framtíðar enda er mikill áhugi á meðal fjárfesta að taka þátt í þessum verkefnum. Loks hefur Viðskiptasmiðjan hjálpað mörgum nýjum frumkvöðlum að koma fyrirtækjum sínum á fót og eiga allavega sum þeirra eftir að vekja mikla athygli á næstu misserum.
Klak – Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins hefur byggt upp Viðskiptasmiðjuna sem hluta af þeirra þjónustu sem fyrirtækið veitir frumkvöðlum. Hátt á þriðja tug kennara koma að þeim áttatíu námskeiðum sem eru kennd á ári hverju í Viðskiptasmiðjunni og fyrirtækin hafa aðgang að á fjórða tug ráðgjafa og mentora sem er fólk úr fjárfestingarsjóðum, viðskiptaenglar, forstjórara og stjórnarmenn stórfyrirtækja, endurskoðendur, lögfræðingar og sérfræðingar í tæknifræði. Um þrjátíu frumkvöðlafyrirtæki geta tekið þátt í Viðskiptasmiðjunni á hverri önn.
Umsóknarfrestur fyrir næstu önn er 15. ágúst en allar frekari upplýsingar fást á vefsíðu klaks (www.klak.is) eða hjá framkvæmdastjóra Klaks (Dr. Eyþór Ívar Jónsson – eythor@klak.is).
Mikilvægi nýrra fyrirtækja og smáfyrirtækja almennt verður ekki orðum ofaukið þar sem rannsóknir benda til þess að þau eru miklu mikilvægari en stórfyrirtæki fyrir atvinnusköpun í niðursveiflu og í atvinnusköpun til lengri tíma. Ný fyrirtæki eru jafnframt grundvöllur þess að nýjar atvinnugreinar verði til og ný tækifæri fyrir Ísland, sem er lykilatriði í framþróun íslenska hagkerfisins.