Klak

Klakverjar á háskóladeginum 2012
Háskóladagurinn 2012 var haldinn laugardaginn 18. febrúar. Klakverjar fjölmenntu í húsakynni Háskólans í Reykjavík og kynntu starfsemi Klaksins og Viðskiptasmiðjuna.

Raggý, frumkvöðull og María, verkefnastjóri Viðskiptasmiðjunnar

Nýsköpun í heilbrigðismálum
Klak og SI standa fyrir fundarröð um nýsköpun í hádeginu á þriðjudögum.

Á Nýsköpunarhádegi Klaks og SI, þriðjudaginn 6. febrúar var afar áhugaverð umfjöllun um nýsköpun í heilbrigðismálum og hvernig skapa má aukin verðmæti með bættri heilsu.

Þær Unnur Guðrún Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Happ ehf. og Anna Lára Steingrímsdóttir, frumkvöðull með meiru fjölluðu m.a. um tengsl lífsvenja við heilbrigði/sjúkdóma og mikilvægi þess að fólk sé ábyrgt og upplýst um eigin heilsu.

Styrkir í boði fyrir sprotafyrirtæki og frumkvöðla
Í boði eru fimm styrkir til náms í Viðskiptasmiðjunni á vorönn 2012. Sérstaklega er verið að leita eftir verkefnum á sviði upplýsingatækni.

Viðskiptasmiðjan er farvegur fyrir frumkvöðla og stjórnendur fyrirtækja til að móta verðmæta viðskiptahugmynd, skapa trúverðugt teymi og framtíðarsýn fyrirtækis sem miðar að vexti og árangri. Viðskiptasmiðjan er hönnuð fyrir fyrirtæki sem eru í rekstri en vilja efla eða umbreyta rekstrinum og frumkvöðla sem eru að móta viðskiptahugmynd sína eða þróa fyrirtækið. Í umsókninni þarf að koma fram lýsing á hugmynd eða fyrirtæki og ferilskrá umsækjanda.

Umsóknum skal skilað rafrænt á póstfangið klak@klak.is.

Vorönn Viðskiptasmiðjunnar – Hraðbrautar nýrra fyrirtækja hefst 30. janúar. Nánari upplýsingar um Viðskiptasmiðjuna er að finna hér.

Breyting á lífi barna með frumlegri menntun!
Annað Nýsköpunarhádegi Klaks á árinu var haldið 17. janúar síðastliðinn og fjallaði um nýsköpun í kennslu – Hvernig virkjum við börnin okkar? Þrír frummælendur fjölluðu um nýsköpunarmenntun barna út frá ólíkum sjónarhornum en það voru Rakel Sölvadóttir, framkvæmdastjóri Skema, Anna Þóra Ísfold, framkvæmdastjóri Nýsköpunarkeppni grunnskóla og Fumiko Ichikawa og Ippei Numata, hjá NPO Motivation Maker. Hulda Hreiðarsdóttir, framkvæmdastjóri FAFU, var fundarstjóri.  Í stuttu máli kom fram í máli þeirra að það væri hægt að hafa veruleg áhrif á sköpunarhæfni barna með því að beyta nýstárlegum kennsluaðferðum og leggja áherslu á sköpun og hugmyndavinnu.

Hulda Hreiðarsdóttir benti á að menntun barna yrði að verða persónumiðuð til þess að skila sem mestum árangri. Börn læra á mismunandi hátt og hafa mismunandi hæfni sem hægt er að byggja á. Hulda benti á að aðferðafræði sem byggist á fjölhæfnikenningu Gardners, sem felur í sér tilgátu um að börn verði að fá að læra með mismunandi hætti, er í auknum mæli að ryðja sér til rúms bæði hér á landi og erlendis.

Rakel Sölvadóttir fjallaði um hvernig væri hægt að kenna börnum forritun. Forritun er í raun nýtt tungumál og mikilvæg leið til þess að lifa með og þróa tækni. Í flestum tilvikum erum við að þjálfa börn í að vera neytendur tækni en ekki upplýstir notendur sem geta nýtt tækni í starfi og leik til þess að skapa og vera skilvirkari. Fyrirtækið Skema hefur t.d. þróað aðferðafræði til þess að kenna börnum að búa til tölvuleiki. Árangurinn af þessu starfi hefur verið mjög athygliverður ekki síst vegna þess að börnin kenna hvert öðru að þróa leiki og eru í raun að skapa með tækninni.

Anna Þóra Ísfold fjallaði um Nýsköpunarkeppni grunnskóla sem hefur verið rekin í á annan áratug hér á landi. Á hverju ári er skilað inn mörg þúsund hugmyndum að nýsköpunarverkefnum barna. Anna Þóra kynnti rannsókn á árangri og áhrifum Nýsköpunarkeppninnar sem sýndi að flestir kennarar töldu að keppnin hefði mikilvæg eða mjög mikilvæg áhrif á nýsköpunarkennslu barna.

Fumiko Ichikawa og Ippei Numata frá Japan fölluðu um verkefnið NPO Motivation Maker. NPO Motivation Maker er einskonar frumlegt starfsnám þar sem börn taka þátt í hugmyndavinnu fyrirtækja. Þau tóku dæmi frá vinnustofu með auglýsingarstofu þar sem starfsmenn auglýsingarstofunnar hjálpuðu börnunum að búa til sölukynningar og ímynd á völdum vörum. NPO Motivation Maker verkefnið gengur út á að hvetja börn til að skapa og nýta sér aðferðir sem eru notaðar hjá fyrirtækjum til þess að skapa sjálf í starfi og leik.

Niðurstaða fundarins var að það er hægt að virkja börn til að skapa með því að leggja áherslu á skapandi menntun og einstaklingsmiðaða kennslu sem miðar að því að hvetja börn til þess að nýta sér aðferðir, tækni og menntun til þess að skapa sjálf.

Klak – Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins heldur Nýsköpunarhádegi Klaks á hverjum þriðjudegi fram í apríl, í Ofanleiti 2, stofu 201, í samstarfi við Samtök iðnaðarins. Allir eru velkomnir til þess að taka þátt í skemmtilegum og fræðandi umræðum um nýsköpun og verðmætasköpun á Íslandi.

Viðskiptasmiðjan – Vorönn 2012
Viðskiptasmiðjan er farvegur fyrir frumkvöðla og stjórnendur fyrirtækja til að móta verðmæta viðskiptahugmynd, skapa trúverðugt teymi og framtíðarsýn fyrirtækis sem miðar að vexti og árangri. Viðskiptasmiðjan er hönnuð fyrir fyrirtæki sem eru í rekstri en vilja efla eða umbreyta rekstrinum og frumkvöðla sem eru að móta viðskiptahugmynd sína eða þróa fyrirtækið.

Ráðgjöf og tengslanet – Fjöldi sérfræðinga í uppbyggingu fyrirtækja og nýsköpun hjálpa frumkvöðlum og stjórnendum að móta verðmæta viðskiptahugmynd, skipuleggja rekstur og móta framtíðarsýn.

Þekking og færni – Stjórnendur fyrirtækja hafa aðgang að námskeiðum sem eru hönnuð með það í huga að byggja upp teymi fyrirtækja, þróa viðskiptamódel og efla stefnumótun fyrirtækis.

Ferli til vaxtar og árangurs – Fyrirtæki fara í gegnum vaxtarferli Viðskiptasmiðjunnar á einu ári með það að leiðarljósi að búa til árangursríkt sprotafyrirtæki.

Viðskiptasmiðjan – Hraðbraut nýrra fyrirtækja var sett á laggirnar árið 2008 í samstarfi við Háskólann í Reykjavík með það að leiðarljósi að efla nýsköpun og fjölga sprotafyrirtækjum á Íslandi. Hugmyndafræðin byggist að miklu leyti á stefnumótunar-, nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum. Markmiðið er að hjálpa frumkvöðlum að skapa og móta viðskiptahugmynd, að byggja upp trúverðugt teymi og að koma á fót og skipuleggja fyrirtæki. Dr. Eyþór Ívar Jónsson hefur þróað og prófað hugmyndafræði Viðskiptasmiðjunnar. Þessi hugmyndafræði hefur verið einfölduð í svokölluðu Klak-módeli.

Mikill árangur hefur náðst hjá þeim fyrirtækjum sem hafa nýtt sér farveg Viðskiptasmiðjunnar. Fyrirtæki eins og Remake Electric, Gavia, Trackwell, AGR, Stjörnu Oddi, Clara, Fafu, Nagli.is og fleiri eru allt fyrirtæki sem hafa farið í gegnum Viðskiptasmiðjuna. Viðskiptasmiðjan er rekin í samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.

Hægt er að sækja um á þessari heimasíðu, undir “Viðskiptasmiðjan”.

www.klak.is/vidskiptasmidjan

Nýsköpun í kennslu – Hvernig virkjum við börnin okkar?
Þriðjudaginn 17. janúar kl. 12:00-13:00

Ofanleiti 2, 2. hæð – stofa 201

Nýsköpunarhádegi Klaks – í samtarfi við Samtök iðnaðarins bjóða til fundar þar sem umfjöllunarefnið er: Nýsköpun í kennslu – Hvernig virkjum við börnin okkar? Fundurinn er skipulagður í samstarfi við Sprotafyrirtækið Fafu og verður á ensku. Sérstakur gestir Nýsköpunarhádegisins eru Fumiko Ichikawa og Ippei Numata frá Japan.

Yfirskrift fundarins á ensku er:

“Innovation in education – How to empower children”

Frummælendur:

Hulda hjá FAFU – Neuroeducation and the future of learning

Rakel hjá Skema – Motivating children through software programming

Anna Þóra Ísfold – NKG the Icelandic innovation competition for primary school

Fumiko Ichikawa and Ippei Numata – NPO Motivation Maker – a Japanese workshop for children

Fundarstjóri:

Hulda hjá FAFU

How can we empower children to learn through innovation and change? How can we change the education system towards more innovative learning approaches? How can we prepare children for the future? Who is responsible for providing appropriate support for teachers, students and parents? What can we do better?

2012 verður ár verðmætasköpunar
Árið 2012 verður ár verðmætasköpunar!

Fyrsta Nýsköpunarhádegi Klaks á árinu var haldið 10. janúar síðastliðinn og fjallaði um horfur 2012 þar sem spurningin var hvort árið 2012 væri ár verðmætasköpunar. Þrír frummælendur mættu til þess að setja sig í spámannsstellingar en það voru Jón G. Hauksson, viðskiptafræðingur og ritstjóri Frjálsrar verslunar, Ásgeir Jónsson, hagfræðingur og lektor við Háskóla Íslands og Gunnlaugur Guðmundsson, stjörnuspekingur og framkvæmdastjóri. Í stuttu máli kom fram í máli þeirra að árið 2012 yrði að mörgu leyti gott ár, ár verðmætasköpunar.

Jón G. Hauksson benti á að meginhlutverk framkvæmdastjóra íslenskra fyrirtækja undanfarin misseri hefði verið að takast á við skuldavanda fyrirtækja og endurskipuleggja fjárhaginn. Nú væri hins vegar svo komið að flestir væru bjartsýnir á að sá tími væri að mestu að baki og veltan gæti aukist á þessu ári. Jón G. lagði jafnframt áherslu á að það þarf vit og vilja til þess að byggja upp og þannig getum við haft áhrif á framtíðina. Hagstjórn og uppbygging þarf að miða að því að virkja hugvitið og nýsköpun en ekki snúast um að festa peninga í steypu og innviðjum. Hann lagði til að markmið ársins ætti að vera fleiri sprotar, og ekki síst sprotar sem myndu spretta af öðrum sprotum, fyrirtækjum eins og Marel, Össur og CCP. Mesta auðlind Íslendinga liggur í hugviti og getu Íslendinga.

Ásgeir Jónsson tók undir margt af því sem Jón G. sagði og bætti við að það væri einkennandi fyrir mörg af öflugustu fyrirtækjum sögunnar að þau voru stofnuð í niðursveiflu og þar af leiðandi ætti að nýta niðursveifluna til þess að huga að frumkvöðlum og sprotum. Ásgeir fór jafnframt yfir þróun atvinnugreina og benti á að aukin útflutningsverðmæti myndu ekki koma úr sjávarútvegi eða orku- eða áliðnaði eins og margir halda fram heldur væri besta von Íslendinga fólgin í vexti ferðamannageirans en ferðamannageirinn hafi vaxið um 7% um langt skeið. Ásgeir benti hins vegar á að það gæti skapað töluvert vandamál á Íslandi ef ekki næðist að auka útflutning meira en útlit væri fyrir, á sama tíma og einkaneysla og innflutningur væru líkleg til þess að aukast með tilheyrandi ójafnvægi og verðbólgu. Ásgeir sagði að árið yrði gott að mörgu leyti og mörg hjól færu að snúast á ný en hættan væri að á árinu 2013 yrði hins vegar afturkippur á ný.

Gunnlaugur Guðmundsson benti á að þrátt fyrir að margir tækju ekki störf stjörnuspekinga alvarlega þá væri árangur spámennsku stjörnuspekinga miklu mun betri en hagfræðinga á liðnum árum. Lykillinn væri að hagfræðingum hætti til að horfa á mjög afmarkaðan hluta veruleikans með sínum hagvísum og þar af leiðandi fá mjög takmarkaða mynd af því sem væri að gerast. Gunnlaugur tók hins vegar undir spár þeirra Jóns G. og Ásgeirs að mörgu leyti og sérstaklega því leyti að árið 2012 yrði gott ár en árið 2013 myndi hins vegar ekki verða jafngott. Gunnlaugur lagði sérstaka áherslu á að þetta yrði ár einkaframtaksins, ár lítilla fyrirtækja og frumherja. Ástæðan væri að miklu leyti að stjórnvöld væru lifandi dauð og gætu því ekki verið það afl sem allir væru að bíða eftir. Gunnlaugur nefndi tvö tímabil á árinu sem væru sérstaklega áhugaverð. Það fyrsta er um miðjan febrúar þar sem við myndum upplifa „síðasta rifrildið“, eins og hann orðaði það, en það hefði í för með sér miklar umbreytingar í stjórnmálum. Seinni dagsetningin sem þarf að hafa í huga er apríl þar sem yfirskriftin er „peningar“ en mikið af peningum gæti streymt inn í landið í apríl. Gunnlaugur benti á að hugsanlega væri þetta peningainnflæði tengt aflandskrónunum, hundruðum milljörðum sem eru óvirkir og fastir í bankakerfinu.

Niðurstaða þessara þriggja spámanna var þar af leiðandi að mörgu leyti svipuð sem kemur kannski skemmtilega á óvart þar sem sjónarhornin eru ólík. Árið 2012 verður ár verðmætasköpunar á Íslandi, tími frumkvöðla og sprotafyrirtækja og tími endurreisnar.

Klak – Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins heldur Nýsköpunarhádegi Klaks á hverjum þriðjudegi fram í apríl, í Ofanleiti 2, (st. 201), í samstarfi við Samtök iðnaðarins. Allir eru velkomnir til þess að taka þátt í skemmtilegum og fræðandi umræðum um nýsköpun og verðmætasköpun á Íslandi.

Næsta Nýsköpunarhádegi Klaks verður haldið þriðjudagin 17. janúar nk. og verður þá fjallað um nýsköpun í kennslu – hvernig við getum virkjað börnin okkar? Tveir japanskir frummælendur segja frá vinnustofum í nýsköpun fyrir börn, ásamt því sem fjallað verður um hvernig má kenna börnum forritun og hugmyndavinnu og áhrif og árangur Nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Sannarlega fræðandi og skemmtilegt Nýsköpunarhádegi Klaks sem enginn má missa af.

Nýsköpunarhádegi Klaks – Horfur 2012
Þema: Horfur 2012 – Verður þetta ár til verðmætasköpunar?

Frummælendur:

Jón G. Hauksson, ristjóri Frjálsrar verslunar – hvað segir viðskiptalífið?

Dr. Ásgeir Jónsson, hagfræðingur – Hvað segja hagvísar?

Gunnlaugur Guðmundsson, stjörnuspekingur – hvað segja stjörnurnar?

Fundarstjóri:

Eyþór Ívar Jónsson, framkvæmdastjóri Klaks

Frummælendurnir þrír á Nýsköpunarhádegi Klaks spáðu því allir að þetta yrði ár frumkvöðulsins – viðskiptafræðingurinn sagði að við yrðum að byggja á þekkingu og nýsköpun í ár, hagfræðingur sagði að bestu fyrirtækin verði til í ástandi eins og nú og stjörnufræðingurinn sagði að allt myndi byggjast á einkaframtaki og litlum og nýjum fyrirtækjum á Íslandi 2012… 2012 verður ár verðmætasköpunar

Nýsköpunarhádegi Klaks var haldið 14 sinnum á haustmánuðum 2011 við góðar undantektir – á fjórða tug sérfræðinga hélt erindi og um fjögur hundruð manns tóku þátt.

Nordic Innovation – Playing with innovation, 3. tbl. 2011
Nordic Innovation er glæsilegt veftímarit um sprota, nýsköpun og hönnun á Norðurlöndum.  “Þegar nýsköpun er leikur” er þema nýjasta tölublaðsins.

Í blaðinu eru m.a. áhugaverð viðtöl við Mikkel Draebye, Jeffrey Wieland og Höllu Helgadóttur. Þá er sérstakur kafli helgaður  fyrirtækjum sem eru að kynna sig fyrir fjárfestum.

Krækja á blaðið: http://www.nordicinnovation.is/

Nýsköpunarhádegi Klaks, þriðjudaginn 29. nóv. kl. 12:00-13:00
Þema: Markaðssetning nýjunga – hvað þarf til þess að skapa “buzz”

Frummælendur:

Rósa Stefánsdóttir, margmiðlunarhönnuður: Gerðu eitthvað frumlegt!

Benedikt Bjarnason frá GlobalCall (globalcall.is): Þegar erfitt er að skapa”buzz”

Þóranna K. Jónsdóttir, MBA, Markaðseinkaþjálfun og ráðgjöf: Brandið er lykillinn

Fundarstjóri:

María Þorgeirsdóttir, hjá Klak – Frumkvæði til framfara

Staðsetning: Ofanleiti 2, 2. hæð – stofa 201