Fyrirtæki leigja aðstöðu í formi herbergja. Minnstu herbergin í Kringlunni 1 eru um 13 fm en þau stærstu um 100 fm. Einnig bjóðum við enn stærri aðstöðu uppi á Höfðabakka. Fyrirtæki fá aðgang að fundarherbergjum og sameiginlegri kaffiaðstöðu.
Langtímaleiga:
Fyrirtæki geta leigt herbergi til lengri tíma. Engar sérstakar tímakvaðir eru á leigusamningi en samningurinn er endurskoðaður reglulega.
Skammtímaleiga:
Frumkvöðlar geta leigt skrifborðsaðstöðu í sameiginlegu rými til lengri og skemmri tíma.
Fundaraðstaða:
Hægt er að leigja fundaraðstöðu fyrir einstaka fundi.
Klakverjar:
Klakverjar eiga það sameiginlegt að vera skapandi frumkvöðlar með mikla framkvæmdagleði. Þeir eru á öllum aldri og margir með mikla reynslu af frumkvöðlastarfsemi í öðrum fyrirtækjum. Mikill ávinningur getur verið af óformlegum samskiptum á milli frumkvöðla og á milli frumkvöðla og stjórnenda Klaksins.
Klaktengsl:
Klak rekur Viðskiptasmiðjuna - Hraðbraut nýrra fyrirtækja, stýrir rannsóknum, skipuleggur ráðstefnur eins og Hugsprettu, Neista, Seed Forum Iceland, o.fl., hefur tengsl við fjárfesta, fræðimenn og þekktustu frumkvöðla landsins. Öll þessi starfsemi tengist í húsnæði Klaksins og gefur því Klakverjum færi á að vera í hringiðu umhverfis sprotafyrirtækja á Íslandi. Reglulega eru samkomur í tengslum við mismunandi atburði og einu sinni í mánuði hittast allir þeir sem vinna í Klakinu og Kringlunni 1 (Tölvunardeild og Verkfræðideild HR) yfir léttum veitingum.
Klakþjónusta:
Klak býður upp á nám, ráðgjöf og aðstoð ýmiss konar sem Klakverjar fá á vildarkjörum.
Fyrirtæki í Klakinu:
Fyrirtæki í Klakinu eru af ýmsum toga s.s.: á sviði upplýsingatækni, gervigreindar, orkumála, menningar, áhættustýringar, ráðgjafar og fleira. Það eru engar sérstakar forsendur fyrir tegund fyrirtækja að öðru leyti en að reksturinn styðji að einhverju leyti þá menningu sem þegar hefur skapast í Klakinu.
Laus herbergi:
Það er laust húsnæði í Kringlunni 1 og uppi á Höfðabakka um þessar mundir. Vinsamlegast sendið fyrirspurning til klak@klak.is eða hafið samband í síma 578 7755.