Húsnæði
Hjá Klaki - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins geta sprotafyrirtæki nýtt húsnæði í takt við þarfir hverju sinni. Klakið er með aðstöðu að Kringlunni 1 og að Höfðabakka 9. Með því að nýta húsnæði í Klakinu njóta sprotafyrirtæki þess ávinnings sem felst í návist við önnur sprotafyrirtæki.

Klakverjum býðst skrifstofuaðstaða, fundar- og ráðstefnuaðstaða. Ýmis þjónusta stendur til boða s.s. símsvörun, mötuneyti, hýsing vélbúnaðar og rekstur tölvukerfa.