Bresk-íslenska viðskiptaráðið í góðri samvinnu við Íslandsstofu stendur fyrir morgunfundi þann 25. april á Grand Hóteli kl 8.30 – 11.00.
Markmiðið með fundinum að veita fyrirtækjum sem hyggja á viðskipti í Bretlandi hagnýtar upplýsingar sem nýtast í daglegu starfi.
Öll fyrirtæki eru velkomin, frá hvaða geira atvinnulífsins sem er. Fyrirtæki sem þegar hafa haslað sér völl í Bretlandi, en vilja aðeins skerpa á starfi sínu, stækka eða leita í reynslubrunn annarra eru sömuleiðis velkomin.
Stutt erindi flytja sérfræðingar frá Íslandi og Bretlandi en svo gefst fulltrúum fyrirtækja kostur á að ræða einslega við þá um sín mál (B2B).
Reynslusögur af viðskiptum í Bretlandi koma frá fyrirtækjunum Mentor, GeoGlobe og Securstore. Fulltrúar frá sendiráði Íslands í Bretlandi og sendiráði Bretlands á Íslandi verða viðstaddir og svara fyrirspurnum.
M.a. verður fjallað um:
-
Lagaumhverfi
-
Skatta og bókhaldsmál
-
Sýndarskrifstofu
-
Hjálparsíma (help line) fyrir fyrirtæki
-
Áhrif gjaldeyrishaftanna
-
Leiðir í markaðssetningu
-
Þátttöku í sýningum
Bresk-íslenska viðskiptaráðið kynnir inngöngutilboð fyrir smáfyrirtæki. Verð er kr. 1000.- boðið verður uppá kaffi, egg og beikon. Skráning hjá kristin@chamber.is


