Skráning á Seed Forum Iceland er á www.seedforum.is
Átta fyrirtæki kynna á Seed Forum Iceland ráðstefnunni í Arion banka 13. apríl nk. Fimm íslensk sprotafyrirtæki, tvö norsk fyrirtæki og eitt sænskt/breskt fyrirtæki kynna sig fyrir fjárfestum á Seed Forum Iceland. Íslensku sprotafyrirtækin eru: Unimaze Software (www.unimaze.com), FPG (www.fancypantsglobal.com), Locatify (www.locatify.com), Grapewire (www.grapewire.com), Nordic Photos (www.nordicphotos.com). Erlendu fyrirtækin eru: Fair Trading Technology (www.fairtradingtech.com), Trianglo (www.trianglo.com) og Dento Tech.
Skráning á ráðstefnuna er á vefsíðunni: www.seedforum.is.
Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, mun opna 15. Seed Forum Iceland ráðstefnuna sem haldin er á vegum Sprotaþings Íslands í Arion banka 13. apríl nk., frá klukkan 9:00 – 13:00. Fleiri en 100 sprotafyrirtæki hafa kynnt fyrir fjárfestum á Seed Forum Iceland frá því að fyrsta Seed Forum Iceland þingið var sett árið 2005.
Aðalræðumaður þingsins er Joachim Krohn-Høegh, framkvæmdastjóri Argentum, sem er einn stærsti áhættufjárfestingarsjóður Noregs með eignasafn sem er rúmlega 150 milljarða króna virði. Argentum er í eigu norska ríkisins en forsvarsmenn sjóðsins hafa lýst yfir áhuga á að fjárfesta í íslenskum áhættufjárfestingarsjóðum.
Ennfremur heldur erindi Torkel Ystgaard, aðstoðarframkvæmdastjóri SIVA – sem er norska nýsköpunarmiðstöðin sem rekur m.a. 44 iðnaðargarða og er hluthafi í 145 sprotafyrirtækjum.
Svana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins og stofnandi Stika fjallar um framtíð nýsköpunar og sprotafyrirtækja á Íslandi.
Fyrsta Seed Forum Iceland þingið var haldið 28. apríl 2005 en tvö þing eru haldin árlega, að vori og hausti. Seed Forum Iceland var frá upphafi mótað sem vettvangur fyrir sprotafyrirtæki til þess að kynna sig fyrir fjárfestum og til þess að vekja athygli á mikilvægi sprotafyrirtækja á Íslandi. Aðalstyrktaraðili Sprotaþings Íslands er Arion banki.
Seed Forum Iceland er rekið af Sprotaþingi Íslands sem samfélag hagsmunaðila sprotafyrirtækja og fjárfesta á Íslandi. Aðilar Sprotaþings Íslands eru: Samtök iðnaðarins, Viðskiptaráð, Eyrir Investments, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Íslandsstofa, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Iðnaðarráðuneytið, Nýherji og Klak – Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins. Jafnframt hafa breska og norska sendiráðið stutt Seed Forum Iceland.

