myndaskraut


Styrkir í boði fyrir sprotafyrirtæki og frumkvöðla

Í boði eru fimm styrkir til náms í Viðskiptasmiðjunni á vorönn 2012. Sérstaklega er verið að leita eftir verkefnum á sviði upplýsingatækni.

Viðskiptasmiðjan er farvegur fyrir frumkvöðla og stjórnendur fyrirtækja til að móta verðmæta viðskiptahugmynd, skapa trúverðugt teymi og framtíðarsýn fyrirtækis sem miðar að vexti og árangri. Viðskiptasmiðjan er hönnuð fyrir fyrirtæki sem eru í rekstri en vilja efla eða umbreyta rekstrinum og frumkvöðla sem eru að móta viðskiptahugmynd sína eða þróa fyrirtækið. Í umsókninni þarf að koma fram lýsing á hugmynd eða fyrirtæki og ferilskrá umsækjanda.

Umsóknum skal skilað rafrænt á póstfangið klak@klak.is.

Vorönn Viðskiptasmiðjunnar – Hraðbrautar nýrra fyrirtækja hefst 30. janúar. Nánari upplýsingar um Viðskiptasmiðjuna er að finna hér.

Flokkur: Óflokkað


Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins - Ofanleiti 2 - Reykjavík - Kt. 440500-2690 - Sími 490 1000 - klak@klak.is