myndaskraut


Breyting á lífi barna með frumlegri menntun!

Annað Nýsköpunarhádegi Klaks á árinu var haldið 17. janúar síðastliðinn og fjallaði um nýsköpun í kennslu – Hvernig virkjum við börnin okkar? Þrír frummælendur fjölluðu um nýsköpunarmenntun barna út frá ólíkum sjónarhornum en það voru Rakel Sölvadóttir, framkvæmdastjóri Skema, Anna Þóra Ísfold, framkvæmdastjóri Nýsköpunarkeppni grunnskóla og Fumiko Ichikawa og Ippei Numata, hjá NPO Motivation Maker. Hulda Hreiðarsdóttir, framkvæmdastjóri FAFU, var fundarstjóri.  Í stuttu máli kom fram í máli þeirra að það væri hægt að hafa veruleg áhrif á sköpunarhæfni barna með því að beyta nýstárlegum kennsluaðferðum og leggja áherslu á sköpun og hugmyndavinnu.

Hulda Hreiðarsdóttir benti á að menntun barna yrði að verða persónumiðuð til þess að skila sem mestum árangri. Börn læra á mismunandi hátt og hafa mismunandi hæfni sem hægt er að byggja á. Hulda benti á að aðferðafræði sem byggist á fjölhæfnikenningu Gardners, sem felur í sér tilgátu um að börn verði að fá að læra með mismunandi hætti, er í auknum mæli að ryðja sér til rúms bæði hér á landi og erlendis.   

Rakel Sölvadóttir fjallaði um hvernig væri hægt að kenna börnum forritun. Forritun er í raun nýtt tungumál og mikilvæg leið til þess að lifa með og þróa tækni. Í flestum tilvikum erum við að þjálfa börn í að vera neytendur tækni en ekki upplýstir notendur sem geta nýtt tækni í starfi og leik til þess að skapa og vera skilvirkari. Fyrirtækið Skema hefur t.d. þróað aðferðafræði til þess að kenna börnum að búa til tölvuleiki. Árangurinn af þessu starfi hefur verið mjög athygliverður ekki síst vegna þess að börnin kenna hvert öðru að þróa leiki og eru í raun að skapa með tækninni.

Anna Þóra Ísfold fjallaði um Nýsköpunarkeppni grunnskóla sem hefur verið rekin í á annan áratug hér á landi. Á hverju ári er skilað inn mörg þúsund hugmyndum að nýsköpunarverkefnum barna. Anna Þóra kynnti rannsókn á árangri og áhrifum Nýsköpunarkeppninnar sem sýndi að flestir kennarar töldu að keppnin hefði mikilvæg eða mjög mikilvæg áhrif á nýsköpunarkennslu barna.

Fumiko Ichikawa og Ippei Numata frá Japan fölluðu um verkefnið NPO Motivation Maker. NPO Motivation Maker er einskonar frumlegt starfsnám þar sem börn taka þátt í hugmyndavinnu fyrirtækja. Þau tóku dæmi frá vinnustofu með auglýsingarstofu þar sem starfsmenn auglýsingarstofunnar hjálpuðu börnunum að búa til sölukynningar og ímynd á völdum vörum. NPO Motivation Maker verkefnið gengur út á að hvetja börn til að skapa og nýta sér aðferðir sem eru notaðar hjá fyrirtækjum til þess að skapa sjálf í starfi og leik.

Niðurstaða fundarins var að það er hægt að virkja börn til að skapa með því að leggja áherslu á skapandi menntun og einstaklingsmiðaða kennslu sem miðar að því að hvetja börn til þess að nýta sér aðferðir, tækni og menntun til þess að skapa sjálf.

Klak – Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins heldur Nýsköpunarhádegi Klaks á hverjum þriðjudegi fram í apríl, í Ofanleiti 2, stofu 201, í samstarfi við Samtök iðnaðarins. Allir eru velkomnir til þess að taka þátt í skemmtilegum og fræðandi umræðum um nýsköpun og verðmætasköpun á Íslandi.

 

Flokkur: Óflokkað


Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins - Ofanleiti 2 - Reykjavík - Kt. 440500-2690 - Sími 490 1000 - klak@klak.is